|
|
27.10.2007 02:17:35 / -babylove
Jæja, komin góður mánuður síðan ég bloggaði seinast :Þ Mikið búið að gerast síðan þá ;D Andrea stækkar og stækkar, og er meira að segja farin að sitja alveg sjálf ;P ooh hún er svo dugleg! Annars hef ég ekkert mikið að segja frá mér, er byrjuð að vinna aftur í bíóinu og á dominos =/ væri alveg til að vera áfram heima með Andreu, hún er ekki nógu gömul til að ég fari frá henni :'( Núna er að styttast óðum í jólin og ég ræð mér ekki yfir spenningi ;D Er of spennt sko :Þ Annars geri ég mest lítið sem er þess verðugt að skrifa um.. Andrea er örugglega að taka tennur af því að hún sefur mjög lítið og er að vakna hágrátandi á svona hálftíma fresti :'( sem skýrir það af hverju ég er að blogga klukkan korter yfir 2 :Þ En já, ég ætlaði bara svona aðeins að láta vita að ég er hérna ennþá =) Ætla að kveikja á dvd og kúra. Skrifa meira á morgun Rúna
»
24.09.2007 11:25:37 / -babylove
1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í þrem orðum. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
»
22.09.2007 09:48:02 / -babylove
Við Haffi erum byrjuð saman aftur, hehe :Þ Vá þið hljótið að vera orðin þreytt á þessu, hehe. Við byrjuðum saman aftur seinasta sunnudag og við Andrea erum fluttar aftur heim. Haffi er byrjaður að vinna hjá verktaka sem heitir Iceland Motopark, og er að vinna ýkt mikið. Ég er bara á milljón í að læra og reyna að halda íbúðinni hreinni, sem er sko erfiðara en að segja það! Það er ekkert smá skrítið að vera aftur byrjuð að læra =/ mér finnst ég bara ekkert kunna þetta lengur. Eins og ég á til dæmis að skrifa tvær ritgerðir núna og ég kann ekki lengur að skrifa ritgerð! Þarf að fá einhvern til að hjálpa mér sko. 
En annars er bara allt gott að frétta ;P Andrea er alveg að verða 5 mánaða og er farin að geta gert alveg helling! Hún er næstum því farin að velta sér heilann hring, vantar bar oggupons uppá, og miðvikudaginn sat hún alveg sjálf!! Ekkert smá dugleg! ;D Svo er hún búin að uppgötva svo mörg hljóð, hehe :Þ Hún kann að urra, bubbla svona í kokinu og svo gerir hún alveg svona hátíðniöskur. Það verður gaman þegar hún verður aðeins stærri, hehe. 
Svo er að styttast í jólin =D Ég er farin að fá soldið mjög mikinn fiðring í magann. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mig hlakkar til! Þið sem þekkið mig vel vitið að ég er soldill jólageðsjúklingur, en guð minn góður! ég hef aldrei verið svona snemma í þessu! Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig ég verð þegar það styttist í jólin! Þetta eru auðvitað fyrstu jólin hennar Andreu svo ég má vera soldið mikið spennt. Það er bara eins og ég sé lítil stelpa aftur. Svo verður Andrea líka orðin svo stór um jólin :Þ Verður orðin alveg 8 mánaða ;D Vá hvað þetta verður gaman!  En ég ætla að segja þetta gott í bili, þarf að fara að læra Adios, Rúna   
»
13.09.2007 19:22:13 / -babylove
Hvað segiði þá ? Ég er mega hress eins og alltaf ;P Þetta er búið að vera brjáluð vika hjá mér sko! Ég er búin að fara tvisvar í bíó, bæði á Knocked up og Disturbia eða hvernig sem þetta er skrifað :Þ Ég var algjör kettlingur á Disturbia, haha og ég þorði varla að horfa á hana xD en ég gerði það nú samt, þar sem ég á að heita fullorðin mamma! 
En íbúðarleitin gengur ekkert of vel hjá mér :/ Þannig að planið er bara að fara til mömmu þegar Íris flytur heim til mömmu sinnar aftur, vera þar í mánuð og leigja svo herbergi heima hjá Hannesi þegar það losnar. Þannig að það verður bara endalaust flakk á okkur Andreu núna fram að jólum alla vegana =( En það góða er að við lendum alla vegana ekki á götunni =) Svo er ég byrjuð í fjarnámi og það er mjög fínt.. loksins farin að læra aftur. Er að taka sögu 103, félagsfræði 103 og íþróttir 111 ;D Svo fer ég í dagskólann eftir áramót og það verður æði! Þá verður Andrea vonandi farin til dagmömmu =) Þá er það bara að krossa fingur og vona að þetta bjargist hjá mér =)  Over and Out Rúna
»
11.09.2007 16:08:04 / -babylove
Hæhæ, ég er komin aftur ;D Orðin miklu hressari og svona :Þ Ég og Haffi erum aftur hætt saman og ég bý núna hjá Írisi minni. Soldið þröngt hjá okkur, hehe :Þ en við höfum það bara fínt hérna. Ég er á milljón að leita mér að íbúð sem við Andrea getum búið í, það gengur að vísu soldið hægt en vonandi kemur þetta allt saman. Ég byrja í fjarnámi á morgun og mér hlakkar ýkt mikið til! ;D Mig langar svo mikið að læra, er með alveg þvílík plön fyrir framtíðina. Andrea stækkar og stækkar bara :Þ Er ávallt hress og skemmtileg =) Brosir og hlær útí eitt sko, hehe það er svo sætt! Hún dýrkar Írisi líka alveg. Íris þarf ekki annað en að mæta á staðinn þá fer Andrea að brosa! En já, ég ætlaði bara svona rétt að láta vita að ég sé á lífi og svoleiðis ;P Rúna
»
06.09.2007 18:15:12 / -babylove
Mér líður bara ekki vel þessa dagana, þannig að ég ætla að fara í pásu frá þessari síðu. Skrifa þegar mér líður betur
»
18.08.2007 20:55:32 / -babylove
Jæja fólk, loksins er ég búin að breyta síðunni. Eða Sunna gerði það fyrir mig. Var sko komin með ÓGEÐ af hinu útlitinu :Þ Ég veit ekki alveg hvað ég á að skrifa um hérna =/ Er eitthvað svo tóm í hausnum og hálf ónýt eftir helgina.. En ég skal reyna að skrifa eitthvað :Þ 
Andrea Björk hló í fyrsta skiptið á fimmtudaginn ;D Það var ekkert smá sætt! Oooh hún stækkar svo hratt, litla stelpan mín :Þ Áður en ég veit af verður hún farin að hlaupa bara! Hún er svo mikil dúlla, er alltaf að verða sterkari og sterkari. Hún vill alltaf bara standa, og heldur greinilega að hún sé bara að fara að labba ;P Hún er orðin svo sterkur karakter, og hún er svo fyndin, hehe ;P Ætla að setja inn hérna fleiri myndir á eftir. Svo eru náttúrulega allar myndirnar inná www.hafsteinsdottir.barnaland.is en hún er læst þannig að ef þið viljið skoða hana þá bara senda mér e-mail eða spurja á msn. (blanket_band@hotmail.com) 
Núna er ég komin með nýja tölvu ;D Hin talvan mín var ALLTAF að bila og var búin að vera meira og minna í viðgerð síðan ég fékk hana. Og ég var orðin nett pirruð á þessu, þannig að Haffi elska fór bara í Tölvulistann og sagðist annað hvort ætla að fá endurgreitt eða nýja tölvu! Og svo kom bara Haffi heim með nýja tölvu fyrir mig :Þ og þessi talva er sko miklu flottari! 
Annars er nú bara mest lítið að frétta af mér, er bara alltaf heima annað hvort á barnalandi eða að lesa Harry Potter (ég veit, ég er lúði) 
En ég ætla að segja þetta gott í bili, heyrumst (L) 
you might regret what you do but you'll regret much more what you dont do :*
»
13.08.2007 15:01:14 / -babylove
Gott að vera komin heim =)
Kom heim á laugardagskvöldinu..
Það var samt alveg æðislegt í sveitinni hjá Önnu Mæju :Þ
Gott að komast úr stressinu í smástund.
Hitti Nínu í smástund áður en við Andrea flugum heim
og það var ekkert smá gaman ;]
Hitti hana samt alltof stutt =/
Hitti hana bara lengur næst!
  
En alla vegana,
ég segi bara allt það sama,
gengur allt vel hjá okkur
litu familíunni =)
  
En já, ég kem í sjónvarpinu örugglega
annað kvöld í Ísland í dag ;D
hehe þetta er soldið kjánalegt :Þ
Kann ekkert að tala í myndavél
þannig að ég mun örugglega vera eins og mongóliti, hehe :]
En það verður bara fyndið að sjá.
Konan sem tók viðtalið var hérna rétt áðan
þannig að nú er bara að bíða og sjá hvernig þetta kemur út allt
saman :Þ
en ég nenni ekki að skrifa meira núna,
skrifa meira seinna ;P

»
04.08.2007 22:37:13 / -babylove
Þetta stóð ekki lengi yfir :Þ
Við Haffi erum búin að ákveða að reyna aftur,
þýðir ekkert að gefast svona upp ;P
Þannig að ég var einstæð móðir í 2 sólarhringa, haha.

Það
er annars ekkert mikið að frétta af mér,
ég held bara áfram að nördast heima og lesa nýju Harry Potter
bókina :Þ
Svo er ég komin með permanent, finally.
Hlakka ekkert smá til á mánudaginn ;D
þá fer ég norður til Önnu Mæju, og verð þar í 6 daga.
Verð náttúrulega að hitta Nínu sætu meðan ég er þarna!
það er komið alveg slatta langt síðan ég hitti hana
=O

Íris
beib er stungin af til eyja,
og ég bara veit ekki hvað ég á að gera, hehe :Þ
Er gjörsamlega orðin háð henni!
Aumingja Íris, hehe ;]

Andrea Björk fór í fyrstu sprautuna sína á
fimmtudaginn,
og mér fannst það hræðilegt!
Úff, þetta var sko erfitt..
sem betur fer var Haffi sæti með okkur til stuðnings :Þ
Annars er allt gott að frétta af ljósinu mínu =]
Hún stækkar og stækkar, og er alveg að skríða í 6 kíló!
Svo er hún byrjuð að fá smá sveskjugraut og hrísgraut.
Það er ekkert smá sætt að sjá hana reyna að borða þetta, haha.
Kann sko engan veginn á þetta :Þ
Ohhh hún er svo æðisleg.
Alltaf brosandi og er farin að urra.
Hehe það er ýkt fyndið,
held að hún sé bara ný búin að utgötva það
að hún geti framkvæmt þetta hljóð =}

En ég
get ómögulega haldið mér lengur frá bókinni
Bæj í bili ;D


»
03.08.2007 14:14:23 / -babylove
Núna er ég orðin einstæð móðir =/ Ekki beint eins
og ég var búin að ímynda mér lífið þegar ég væri 19 ára.. en
maður fær víst ekki allt sem maður vill, that's for sure.. Ég
verð bara að gera það besta úr því sem ég hef.. Guð, ég veit
ekki hvernig ég á að höndla þetta.. þetta er eiginlega einum
of stórt fyrir mig.. Ég er allt í einu að fatta hvað ég er
eitthvað ein í heiminum. Ég er búin að missa flestar vinkonur
mínar, get ekki búið hjá mömmu né pabba, þau eru bæði komin
með sínar fjölskyldur og bráðum hef ég engan til að segja
góða nótt við og kúra með, sem gerir það á móti... Ég kann
ekki að vera á lausu, og ég kann ekki að vera ein.. Hvar á ég
eiginlega að búa? vá lífið er of erfitt núna... Ég fæ samt að
búa hjá Haffa í einhvern tíma svo að við Andrea erum ekki
alveg komnar á götuna. Tilveran hefur ekki verið svona svört
lengi.. Og ég sé ekki fram á það að fara á fast aftur næstu
árin af því að það geta nú ekki verið margir strákar sem eru
tilbúnir í barnapakkann svona allt í einu... Mig langar svo
að gráta en ég get það ekki... hvað á ég að gera
):

  
»
01.08.2007 01:24:28 / -babylove
Sorry folks, talvan mín
er ennþá í viðgerð þess vegna er ég svona léleg hérna inná
=/
En jáw ekki mikið búið að vera um í mínu lífi seinustu dagana,
svona til tilbreytingar!
Ég er sko að verða brjál á þessu aðgerðarleysi og LETI.
Er reyndar farin að rífa mig í ræktina og ég þreif íbúðina á
sunnudaginn
og hún er ennþá hrein =O
og það er sko að koma miðvikudagur!
Þetta er sko met!
Svo er ég líka duglegri að fara með Andreu út að labba,
fór meira að segja í gær í geðveikri rigningu í soldið stórann
hring ;P
Eins og þið vitið kannski
sum fengum við okkur boxer hund fyrir sotlu síðan.
Mér líkaði ekkert alltof vel við hann fyrst en núna ELSKA ég
hann..
Aww hann er svo mikil dúlla og algjör kúrubangsi!
Ýkt góður hundur sko ;D
  
Anyways...
Ég fór í bíó áðan með Írisi á Simpsons the Movie og við hlógum sko
allan tíman, haha ;Þ
Ýkt fyndin mynd.
Sunna Lind var að passa Andreu á meðan.
Hún er orðin svo dugleg =)
Kann alveg á hana og er alveg fyrirtaks pössunarpía ;D
Og Freyja sæta, hundurinn hennar Írisar var í pössun hjá mömmu á
meðan,
og hún og Kolur skemmtu sér mjög vel.
Ég held meira að segja að þau séu orðin kærustupar :Þ
Þar er hún Íris heppinn af því að Kolur er geldur.
Ekki oft sem dætur manns eignast kærasta sem vill ekki ríða
og getur ekki gert þær óléttar, haha ;D
Freyja er sko eins og barnið hennar Írisar =)
Svo er ég að fara í
heimsókn til Önnu Mæju norður eftir versló og verð þar í viku
;D
Tek Andreu náttla með.
Förum með flugi, og ég er soldið stressuð að fljúga með hana
=/
Fyrsta flugið hennar!
  
En mig vantar góð væmin lög
og ég veit um svo fá.
Komið með þau sem þið munið eftir, pretty please :*
Og mig vantar líka svona ýkt hress og hröð lög til að hlusta á í
ræktinni!
En ég er farin að lesa,
góða nótt beibís

P.S. Mig vantar líka kvöldvinnu, hvar á ég að sækja um?
Vantar sko vinnu eins fljótt og hægt er
»
23.07.2007 20:24:11 / -babylove
Hellú, ég verð víst að blogga hérna
=/ Ég var að fatta soldið svakalegt!
Ég hef aldrei á ævinni haft eina síðu svona lengi =O
Þetta er alveg met!
En já, lífið mitt.. á fimmtudaginn skellti ég mér
með Írisi, Erlu vinkonu hennar og Haffa á Paddy's.
Þar voru Ten Steps Away að spila.
Þeir eru vinir hans Haffa,
og Rúnar gamli vinur minn var orðinn trommari hjá
þeim!
Ekkert smá lítill heimur!
Hann er orðinn klikkað góður kallinn ;P
En þetta er sko mega furðulegt, hitti hann tvisvar á einni
viku.
Og á undan því hitti ég hann seinast fyrir tveim árum!
En svo á föstudaginn komu Íris, Tinna og Jóhanna vinkona
Írisar til mín.
Við sátum hérna og spjölluðum bara og þá komst ég að því að Haffi
og Jóhanna þekktust ;P
Þau bjuggu bæði á Blöndósi og Haffi var svaka skotinn í
systur Jóhönnu, hehe :Þ
Svo skelltum við okkur aftur á Paddy's og það var stuð.
Svo vaknaði ég daginn eftir, guð minn góður!
Vá hvað ég var þunn!!
Shitt sko, og Haffi líka :Þ
Svo að ég endaði á að fá Sunnu Lind til að hjálpa mér með
Andreu, hehe ;P
Svo í gær var ég ennþá soldið þunn,
en ákvað að
rífa mig uppúr letinni og fór með Andreu til mömmu.
Fengum vöfflur og nammi gott =)
Vorum svo líka í kvöld mat og fengum svona gammeldags
lambakótilettur.
Það var ekkert smá gott!
Í gærkvöldi
gerðist soldið hræðilegt og viðbjóðslegt!
Ég lá bara uppí rúmi og var að lesa rólegheitunum
og fann svona kitl á hendinni og leit niður,
OG ÞÁ VAR SVÖRT ÓGEÐSLEG PADDA AÐ SKRÍÐA Á MÉR! Í RÚMINU
MÍNU!!
Ég panikkaði alveg og stökk úr rúminu og kallaði á Haffa sem kom
og bjargaði málunum,
stóra hetjan mín hehe :Þ
En ég var í svo miklu sjokki að ég fór bara að hágráta!
hehe *roðn* :Þ
Og Haffi huggaði mig, og leitaði í öllu herberginu að annari
pöddu,
svo að ég mundi þora að sofa í rúminu,
en ég svaf samt bara í kuðli í horninu á rúminu sem var
lengst frá staðnum sem paddan kom upp. Þetta var
hræðilegt!
»
18.07.2007 22:48:39 / -babylove
Sorry hvað síðan er dauð, talvan mín
er í viðgerð og er búin að vera það í soldinn tíma
=/
  
Draumurinn hans Haffa rættist í gær ;D
Hann fékk sér boxer hund, ýkt flottan :Þ Hann heitir Max. Gerðum
sko díl þannig að nú má ég fá mér tjúa ;D Úff það verður samt
svakalegt, haha! Svo eru mamma og co að flytja núna og ég er búin
að vera mikið hjá þeim í nýja húsinu, sem er by the way mega töff.
Og það tekur ekki langan tíma að labba þanngað frá okkar húsi
þannig að ég mun vera dugleg að hanga hjá mömmu gömlu ;P Svo á
morgun á ég afmæli og verð 19, ég býst samt ekki við að ég geri
mikið annað en að þrífa(mega spennó) af því að á föstudaginn ætla
nokkrar stelpur að koma til mín í svona late innflutnings slash
afmælispartý, ef partý má kalla haha. Verðum svona 6 eða 7 stelpur.
Seinasta föstudag fór í partý til Tinnu sætu af því að hún átti
afmæli um daginn. Það var stuð í þennan stutta tíma sem við Haffi
stoppuðum, hitti Rúnar ;D Er sko ekki búin að hitta hann síðan
2005? minnir það allavegana. En hann er ekkert smá breyttur, tók
mig sko langan tíma að fatta að þetta væri hann ;P Annars er nú
mest lítið að frétta, bara same old same old. Sem sagt hanga heima
of löt til að gera neitt, hehe (: En stelpan er farin að kalla á
mat, smell you later :*
  
P.S. Ég er orðin
rauð-ljóshærð :Þ Sem sagt bara eitt skipti í viðbót og þá næ ég
rétta litnum ;D

»
09.07.2007 13:14:11 / -babylove
Guð, ég veit ekki hvað er að mér
þessa dagana =/
Ég er svo þreeeeeeytt..
get bara engan veginn vaknað! Fór að
sofa í gær um tvö leytið, vaknaði í morgun um 10, var
vakandi í klukkutíma,
sofnaði aftur og var að vakna nú.
Þetta mundi ég kalla ágætann svefn
en samt er ég núna að berjast við að halda
augunum opnum!
  
Í gær fengum við Haffi smá pásu frá
foreldrahlutverkinu,
og skelltum okkur í Reykjavík.
Þar byrjuðum við að fara út að borða á Grillhúsið Tryggvagötu
og fengum ýkt góðann mat ;P
Svo skruppum við aðeins í tívolíið og röltum þar aðeins,
og skelltum okkur svo í bíó í Lúxus salinn í
mjóddinni,
á Evan Almighty..
sem er b.t.w. gjeeeeðveikt fyndin
;D
Þannig að við áttum bara
rómó og skemmtilegt kvöld tvö ein saman
:Þ
Var líka kominn tími til! En
mamma og Höskuldur voru svo sæt að passa fyrir okkur
;*
  
Svo er ég núna að fara og panta mér tíma
í klippingu og litun, og permanet!
;D
Jebb, Haffi ætlar að gefa mér permanet í afmælisgjöf
og ég má fá það fyrr :Þ
Á líka bara afmæli eftir 10 daga ;P
Ég ætla að lýsa hárið mitt meira og fá svona
ýkt flottar krullur.
Ég elska hárið mittþegar það er krullað ;D

En ég er farin að gera eitthvað af viti,
blessó :*

[[RÚNA
MAMMA]]
»
06.07.2007 15:39:52 / -babylove
Ég er pirruð í dag. Ætlaði að fara í bláa
lónið með vinkonum mínum um 1 leytið, en núna er klukkan
orðin hálf 4, og ég er enn að bíða.. eða kannski ég gefist
bara upp og geri eitthvað annað? Einhver veginn finnst mér
það vera komið í tísku að láta mig bíða endalaust eða beila á
mér.. svo hafa líka flestir(ekki allir) vinir mínir bara
gufað upp á meðan ég var ólétt og allt í einu á ég næstum
enga vini! Einu manneskjurnar sem hringja reglulega í mig eru
Haffi, mamma og Íris, og ég er löngu búin að gefast upp á því
að hringja í alla hina.. Er ég virkilega svona breytt að
enginn nennir að tala við mig? Eða hef ég alltaf verið svona
leiðinleg og allir bara að bíða eftir "afsökun" til að hætta
að tala við mig?
[[RÚNA]]
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Nýtt <3
Nýtt;; 18.08.07
-*Blogg
-*Myndir
-*Mánaðarins
-*Útlit
-*Skoðunarkönnun
-*Tónlist
-Rúna

|